Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Sol og meiri sol

Vid erum buin ad hafa thad rosalega gott i solinni. Hun er stundum full sterk en eg er tho farin ad venjast henni that mikid ad mer er stundum full kalt a kvoldin!!!! Er ad fara i solbad og aetla svo a strondina seinnipartinn thegar hitinn hefur minnkad adeins. Bidjum ad heilsa ollum. Skal.... !!!!


Gaman a solarstrond

Nenni ekki ad skrifa lengi med utlendska stafi en vildi bara lata ykkur vita ad thad er gaman ad sola sig, drekka  bjor, fara i dyragard og ut ad borda. Gaman, gaman og meira seinna LoL. Skal!!!!!!


Tenerife here we come.....

Þetta er að skella á... núna eru bara tveir og hálfur tími þar til við ætlum að fara upp í flugstöð. Siggi og Alma eru enn sofandi en ég var svo spennt að ég vaknaði fyrir allar aldir... LoL . Í gær fórum við í sund í Keflavík og Alma montaði sig á sundhæfileikum sínum við pabba sinn og afa. Við fórum svo í Reykjavík þar sem ég hitti Hörpu og Guðrúnu sem eru með mér í saumaklúbbi. Við hittumst reyndar ekki nógu oft þar sem þær eru 3 í Reykjavík, svo ég á Króknum og ein í Skotlandi. Þegar við brottfluttu erum í bænum hóum við í hinar og hittumst og það er alltaf gaman. Það þýðir það reyndar að ég hef ekki hitt Brynju síðan ég flutti norður en maður fréttir svo sem af henni. Ég sendi Siggi á meðan í burtu enda ekki boðið í saumaklúbbinn Halo . Þegar við komum til Keflavíkur fórum við til Friðriks bróðirs og þar var sameiginleg grillveisla í boði Sibba (klára úr ísskápnum dæmið áður en ég fer til útlanda.... he he) og pabba. Við Anna gerðum salat og opnuðum dósir og Friðrik grillaði með stuðningu Sibba og Sigga. Þetta var ósköp gaman og ég held að allir hafi skemmt sér mjög vel. Við fórum seint en kíktum samt aðeins til Köllu og Jonna á heimleiðinni og tókum pabba með. Núna er svo bara að skella sér í sturtu og loka töskunum. Ég ætla að hitta Ingu Sif og fjölskyldu sem er einnig að fara í sólina uppi í flugstöð og við vinkonurnar ætlum að fá okkur einn kaldan saman í hádeginu.... svona á lífið að vera mar.....Sideways  SKÁL!!

Bara tveir dagar eftir.....!!!!

Þetta er alveg að koma. Sól og hiti here we come....!!!!!! LoL  Alma telur niður og ég líka, Siggi er aðeins svalari en hlakkar samt líka til að fara og sleikja sólina. Við erum búin að hafa það gott um helgina. Fór á laugardagsmorgunn í sund með Ölmu og svo fórum við með Friðriki Rúnari litla frænda og Sigrúnu vinkonu út á Garðskagavita þar sem var sólstöðuhátíð... svolítið seinir þarna í Garði en allt í lagi Wink . Það var svo sem ágætt fyrir utan brjálað rok sem olli því að við hrökluðumst í burtu eftir um klukkutíma og fórum heim til Sibba að horfa á DVD. Ég skellti mér að vísu í að hjálpa honum að pakka en gríslingarnir gláptu og fóru svo heim til Friðriks að leika með nýja tölvuleikinn sem hann fékk í afmælisgjöf frá afa. Um kvöldið kíkti ég aftur á Auði og svo þegar Alma var sofnuð fór ég til Sifjar því hún ætlaði að hjálpa mér að lita á mér augabrúnirnar. Það tókst ágætlega en ég þarf aðeins að laga þetta þegar ég kem út. Þetta var í fyrsta sinn sem ég geri þetta sjálf og ég ætla að kaupa græjurnar í fríhöfninni og redda þessu úti. Önnur augabrúninn er aðeins dekkri en hin..... rosa sexý.... eins og ég sé pínu skökk í framan......Wink  Siggi kom suður í gærkvöldi svo nú er hann loksins kominn með okkur í sumarfrí. Bara gaman. Í morgun lágum við i leti og Alma naut þess að kúra í fanginu á pabba. Við fórum svo í bæinn og sóttum Guðrúnu og fórum i Fjölskyldu og húsdýragarðinn og þaðan í afmæli hjá Jens Berg sem er 10 ára frændi Ölmu og Sigga. Við erum svo aftur komin í letikast heima hjá Sibba eftir að hafa horft á úrslitaleikinn á EM. Ég bjóst ekki við að horfa á hann þar sem ég er ekki mikil fótboltabulla en ég ákvað samt að halda með Þýskalandi svona til að senda Mariönnu móralskan stuðning!!!! he he he en eftir smá stund skipti ég um skoðun því mér fannst Spánverjar spila betur og þeir áttu sigurinn fyllilega skilið í þetta sinn. Þeir spiluðu betri bolta og áttu fleiri færi svo ég var bara sátt í endan. Leiðinlegt samt Marianna fyrir þig.... en svona er þetta bara Whistling

Sólbaðsveður í Keflavík

Ég á því ekki að venjast að það sé sól og blíða dag eftir dag í Keflavík en þannig er það búið að vera núna í heila viku. Við erum búnar að hafa það gott mæðgurnar og fara í göngutúra, sundferðir og heimsóknir. Í gær grillaði Friðrik ofan í okkur og við sátum úti á palli fram á kvöld. Það var ákaflega notalegt enda pallurinn fallegur og skjólgóður. Ég kíktii líka smá stund á Mundu og klappaði sætasta hvolpi sem ég hef á ævi minni séð. Var að spá í að setja hann í töskuna mína og taka hann með mér heim!!!!! Siggi kom svo um kvöldið og við nutum þess að glápa á imbann en fórum snemma að sofa. Ég er búin að vera að fara seint að sofa flest kvöld enda í heimsóknum eða gestir fram á kvöld hérna. Svo höfum við Sibbi líka verið að glápa á DVD fram á nótt. Fínt að fara að sofa snemma eitt kvöld. Í dag ætla ég að hjálpa Sibba að pakka niður en einnig skella mér í sund í einhverja klukkutíma.

Lífið í Keflavík

Við erum búnar að gera hitt og þetta síðustu daga. Í fyrradag tókum við algert letikast og gláptum á DVD í nokkra klukkutíma. Mikið var gott að slaka aðeins á og vera ekki á þessum stöðuga þeytingi. Við skruppum að vísu út í göngutúr með Sigurbjörgu og Kötlu litlu. Alma fékk að keyra vagninn í smá stund og fannst það ekki leiðinlegt. Siggi kom um kvöldmatarleytið og eftir mat skruppum við til Auðar. Þar fyrir utan hitt ég fyrir tilviljun Möggu Rán sem ég hef ekki hitt í nokkur ár og Ásdísi sem var með mér í bekk í grunnskóla. Við spjölluðum aðeins saman og var það mjög skemmtilegt. Auður var hress eins og venjulega. Við Siggi og Sibbi gláptum svo á Die Hard 4 og þið sem þekkið mig vitið hvað mér finnst Bruce Willis flottur gaur.... ohhhh það var ekki leiðinlegt að horfa... Wink !!! he he he Í gær fórum við Alma og skoðuðum nýja húsið hennar Berglindar frænku. Því miður voru krakkarnir ekki heima svo Alma gat ekki leikið við þau en hún kíkti á dótið og það var gaman. Flott hús Berglind, til hamingju Happy. Við skelltum okkur svo í Smáralindina, göngutúr og nesti í Elliðaárdalnum, heimsókn til Nönnu, gleymdum okkur í Just4kids og að lokum fórum við í IKEA. Þegar við komum til Sibba elduðum við kjúklingarétt og svo um kvöldið komu Sigrún og Sif með rauðvín, kex og osta. Mjög notaleg kvöldstund. Á eftir förum við í sund og ætlum að vera lengi lengi lengi í góða veðrinu og svo í kvöld er afmælisgrillveisla fyrir Friðrik Rúnar sem er yngsta krílið hans Friðriks bróðirs. Hann varð 8 ára í vikunni og nú er fjölskyldunni boðið í grill og næsheit. Frábært veður og grill á pallinum hljómar rosalega vel Cool. Yfir og út allir saman!!!! LoL


Tæknierfiðleikar

Ég get svo svarið það.... þetta er í annað sinn á nokkrum dögum sem ég er búin að skrifa færslu sem birtist síðan ekki. Nenni ekki að skrifa hana aftur en vil þó segja að við skemmtum okkur vel í dag mæðgurnar. Fórum með Sif og Sigrúnu í göngutúr í Heiðmörk og átum þar nesti. Fórum í Nauthólsvík, Perluna að borða ís og gengum um Öskjuhlíðina. Fórum svo að flatmaga á Ingólfstorgi í sólinni. Very nice .... svona á sumarið að vera Grin . Kíkið svo á nýjar myndir frá deginum undir fjölskyldumyndir.

Brúðkaupið

Vá ég þoli stundum ekki tæknina. Var búin að skrifa þessa fínu færslu um brúðkaupið en hún hvarf. Kíkið bara í staðinn á myndirnar undir fjölskyldumyndir. Þar má líka sjá mynd af því þegar við kvöddum Mariönnu. Það var frekar erfitt því Alma fór að gráta og þá táruðumst við öll. Við kíktum svo í dag í heimsókn til Óla Jóns og Sonju. Ég hafði ekki séð Óla mjög lengi og sá dóttur hans í fyrst skipti. Bara gaman.....

Kuldagallaveður á 17. júní

Hæ hó jibbí jey og jibbí jey... það er búinn sautjándi júni....... he he he W00t   Við byrjuðum daginn á að þrífa eðalvagninn enda hefur greyið ekki verið þrifinn almennilega í svo langan tíma að ég ætla ekki einu sinni að viðurkenna hversu langur tími þetta er. Eitthvað annað en granninn sem þrífur sinn næstum daglega svo maður fær nett samviskubit í hvert sinn sem maður lítur út um gluggann he he he he Blush  Þórdís, Bjarni og krakkarnir komu um hádegi og við fórum í skrúðgöngu sem endaði niður á íþróttavelli. Þar voru þessar venjulegu ræður sem enginn nennir að hlusta á en svo tóku Gunni og Felix við og viðstaddir lágu í hláturskasti. Þeir voru mjög skemmtilegir en vandamálið var að þegar þarna var komið sögu var ég byrjuð að hristast óstjórnlega og ef ég hefði verið með barn á brjósti hefði það fengið "sheik" þennan daginn!! Það var svo mikið rok að þó ég hefði reynt að klæða mig bæði pæjulega og hlýlega var orðið ljóst eftir klukkutíma útivist að annað hvort var að gefast upp og sleppa öllu þessu skemmtilega eða fara heim í kuldagallann sem við og gerðum. Þegar við Alma komum aftur skellti ég henni á hestbak og svo voru skátarnir með flotta aparólu sem hún fór einnig í. Næst var komið að grillröðinni og þar var hægt að velja á milli lambakjets og verra lambakjets (lesist... pylsur!). Við skelltum okkur á pylsur því það átti að grilla um kvöldið og við vildum ekki spilla matarlystinni. Gunni og Felix tóku svo aðra skemmtidagskrá við góðar undirtektir þeirra sem voru ekki frosnir úr kulda. Við fórum svo heim og grilluðum folaldakjöt og kótilettur. Maturinn var geggjaður og börnunum leiddist ekki að fá ís í eftirrétt. Siggi þurfti svo að fara að suður en við slökuðum á í gærkvöldi og spáðum í hvort næst yrði grillað ísbjarnarkjöt!!!!??? he he he Þeir hljóta að vera komnir með þvílíkar byrgðir að bráðum fara að koma tilboð í Bónus... ferskt ísbjarnarkjöt... beint af skepnunni..... Svo segja berdreymnir hér fyrir norðan að það sé einn eftir enda fyrst var kall, svo kelling og kemur þá ekki húnninn næst!!!!

Annar ísbjörn!!!

Ég fékk nú bara hroll þegar ég frétti að það væri ísbjörn á Hrauni á Skaga. Tengdaforeldrar mínir búa á næsta bæ og í gær vorum við þar í heimsókn ásamt elstu dóttur hans Sigga, manni hennar og tveimur barnabörnum. Krakkarnir voru í marga klukkutíma að leika sér við að sulla í læknum sem staðsettur er aðeins örfáa metra frá sjónum!!!! Ég hefði ekki viljað fá kvikindið í land þar í gær þegar þau voru úti að leika. Maður þakkar bara sínum sæla fyrir að allir á Hrauni eru komnir inn og í öruggt skjól. Ég frétti af því fyrr í dag að þau horfðu á hann út um gluggann. Þá lá hann í einhverju barði rétt við bæinn og hafði það notalegt. Núna er hann hinsvegar á góðri leið með að eyðileggja fyrir fólkinu æðarvarpið sem er búið að byggja þarna upp síðustu árin. Ég væri líklega frekar pirruð ef ég væri í sporum Steina og Merritar núna. Það hlýtur að vera fúllt að horfa upp á kvikindið eyðileggja margra ára uppbyggingarstarf og mega svo ekki fara út að skjóta.... Frown 

Allavegana... ég var að stússast í dag. Þurfti að fara á milljón staði sirka bát og mikið var ég glöð að eiga ekki heima í Reykjavík því eins og allir vita tekur óheyrilegan tíma að fara á nokkra staði þar. Ég tók þetta hinsvegar í nefnið á sirka þremur tímum og á þeim tíma kom ég miklu í verk. Ég fór líka að skoða hvað við hjónin ættum af stuttbuxum og suðrænum flíkum og kom þá í ljós að eiginmaðurinn á einar stuttbuxur (sem ég held að passi) og 3-4 boli sem eru sennilega of litlir!!! he he he Errm Það er því nokkuð ljóst að annað hvort þarf ég að finna nektarbaðströnd þarna úti eða kaupa eitthvað á kallinn.... Spurning hvort væri skemmtilegra! Sennilega búðarferð þar sem krakkinn er með í för og nektarströndin kannski ekki alveg við hennar hæfi. Við förum svo suður á fimmtudaginn og verðum þar þangað til við förum út. Gerðum góðan díl við nágrannana... þið passið fyrir okkur húsið og svo pössum við ykkar. Mæli með nágrannagæslu þegar fólk fer í sumarfrí svo vondu kallarnir komi ekki og hreinsi allt út.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband