Færsluflokkur: Mannréttindi

Umskurður er sorglegur

Sorglegast er að seint gengur að fræða fólk um umskurð í þeim löndum þar sem hann tíðkast. Sum staðar eru stúlkur umskornar vegna þess að menn trúa því að þær verði ekki "hreinar" og hæfar til giftinga fyrr en eftir umskurð en annars staðar eru þær umskornar vegna þess að margra alda siðvenja krefst þess. Í einhverjum tilvikum er þetta gert til að koma í veg fyrir að þær geti notið kynlífs. Sjálfsagt eru fleiri ástæður en það sem ég hef lesið um umskurð er á þessum nótum. Umskurður getur verið allt frá því að "bara" snípurinn er fjarlægður í það að allur ytri hluti kynfæra kvenna er skorinn í burtu. Gjarnan er þetta gert úti í skógi eða við óviðunandi hreinlætisaðstæður, með óhreinum rakvélablöðum og stundum blæðir stelpunum út. Venjulega eru þær skelfingu lostnar og oft á tíðum eru þær mótmæltar umskurðinum en foreldrar og fjölskylda ásamt samfélaginu neyðir þær í þetta. Fræðsla fólks hefur aukist á þann hátt að stelpurnar eru að byrja að gera sér grein fyrir því að þetta er ekki venja annars staðar og þykir alls ekki sjálfsagt. Margir njóti lífsins þrátt fyrir að vera ekki umskornir og þessvegna eru sífellt fleiri stúlkur mótfallnar en mæður þeirra eru hræddar um að þær gangi ekki út ef þær láta þetta ekki yfir sig ganga. Það finnst manni sérlega merkilegt þegar í hlut á fjölskylda sem hefur búið til fjölda ára í vestrænu samfélagi og sér fólk lifa venjulegu lífi, eignast börn og njóta lífsins..... ÁN umskurðar!!!! Ég gæti betur skilið þessa fjölskyldu ef hún byggi í Súdan en það er alls ekki málið....... ég vona bara að sem flest börn sleppi við þetta í framtíðinni :)
mbl.is Danmörk: Dæmd fyrir að láta umskera dætur sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband