Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Bankaupplýsingar mínar!!!

Datt svona í hug að næst þegar þeir væru með fullar ferðatöskur af peningum þá gætu þeir bara haft samband við mig og ég skal sjá um að geyma þær og koma peningunum í lóg.... he he he Halo
mbl.is Sviku út milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott framtak

Þetta hljómar vel og mun vonandi reynast eins vel og lofað er. Mér finnst líka frábært að það eru Íslendingar sem hanna þessa  barnaleitarvél á netinu.

Þetta hljómar nú reyndar hálf perralega... það er eins og þeir séu að nota netið til að leita að börnum!!!!! Smá grín... fannst þetta hljóma hálf illa svona eftir á að hyggja... Devil


mbl.is Leitarvél fyrir börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nördapróf

 

<a href="http://www.nerdtests.com/nt2ref.html">
<img src="http://www.nerdtests.com/images/badge/nt2/852b548ae47b8e5d.png" alt="NerdTests.com says I&#39;m a Slightly Dorky Non-Nerd.  What are you?  Click here!">
</a>

Ég tók nördapróf þar sem kom í ljós að ég er ekki nörd en slightly dorky.... erfitt að þýða það almennilega. Mér gengur illa að koma myndinni inn en hérna eru niðurstöðurnar:

Vísindi og stærðfræði: 17 % nörd

Tækni og tölvur: 5 % nörd

Vísindaskáldskapur og teiknimyndasögur: 3 % nörd

Saga og bókmenntir: 67 % nörd...... er einhver hissa sem þekkir mig... he he he

Klaufalegur aulagangur: 68 % nörd.... hm.....er kannski ekki alveg sammála hérna en well.... sumar spurningarnar voru þannig að maður bara svaraði út í hött... líklega þessvegna sem ég fæ aulastimpilinn W00t...... he he he he


Et, drekk og ver gladr!!!!

Mikið rosalega erum við búin að hafa það gott í fríinu. Kalla og Jonni komu til okkar á skírdag og við fórum um kvöldið að hlusta á Pál Óskar og Monicu syngja og spila í kirkjunni. Í miðjum tónleikum var altarisganga og í stað oblátu og messuvíns var boðið upp á hálft rúnstykki og nokkur vínber!!! Frekar frumlegt verð ég að segja!! Tounge Nú þegar við komum heim fengum við okkur osta og rauðvín og spjölluðum langt fram eftir nóttu. Ja spjölluðum og ekki því Kalla komst í spástuð og spáði fyrir Guðrúnu og tveimur vinkonum hennar þannig að þær sátu eftir með gæsahúð eftir "nornina".... he he heLoL. Á föstudeginum var vaknað snemma og smurt nesti. Síðan var keyrt upp á skíðasvæði og flestir skellltu sér á skíði eða bretti. Jonni þurfti að fara á bretti því ekki fengust skíðaskór á hann í réttri stærð og við hin skemmtum okkur konunglega við að sjá fertugan manninn detta á 5 metra fresti niður brekkuna ..... he he he Hann stóð sig nú samt helv. vel miðað við aldur og fyrri störf. Alma prufaði að fara á skíði í fyrsta sinn og það gekk nokkuð vel. Guðrún hélt við hana og þá var gaman en í fyrstu ferðinni datt hún í lyftunni og það tók tíma að fá hana til að þora aftur. Eftir það var bara brjálað stuð. Þegar fór að líða á daginn voru svo margir að maður eyddi meiri tíma í lyftunni svo ég hætti að nenna að fara. Á leiðinni heim keyrðum við fram á Smára son hans Sigga þar sem hann var að græja sig á vélsleðann og allir fengu að prufa við mikinn fögnuð. Adrenalínið í stelpunum dugði lengi fram eftir degi... he he!!! Næst var síðan farið í hesthúsið og þá fengu þeir sem vildu að skreppa á bak. Sumir innan gerðis en aðrir utan þess! Pabbi mætti seinnipartinn. Allir fóru þreyttir að sofa og sofnuðu snemma þetta kvöld. Á laugardeginum var ýmislegt brasað en meiri rólegheit samt. Um kvöldið skellti fullorðna fólkið sér svo á ball með Geirmundi og dansaði frá sér allt vit. Hrikalega gaman verð ég að segja. Í dag var svo hádegismatur svo og borðuð páskaegg. Öllum er hálf bumbult og liggja afvelta fyrir framan sjónvarpið og slaka á eftir að gestirnir eru farnir og allir magar fullir af mat og súkkulaði!!!! Crying. Það verður kál og skokk á morgun, svo mikið er víst!!! Gleðilega páska annars allir vinir og ættingjar.

Et, drekk og ver glaðr!!!!!


Páskafrí

Það er gott að vera í páskafríi. Ég er búin að vera "assgoti" dugleg í fríinu. Tók gestaherbergið í gegn. Er búin að mála og setja allt inn aftur og gera fínt. Nú geta Kalla og Jonni farið að koma í fína gestaherbergið og látið sér líða vel. Von er á þeim í kvöld á meðan fjölskyldan fer í Sauðárkrókskirkju á tónleika með Páli Óskari og Monicu. Ég get ekki beðið. Mér finnst Páll Óskar svo frábær og svo er alltaf gaman að taka þátt í menningarviðburðum eins og þessum. Við ætlum að vera mætt snemma til að fá góð sæti. Svo er planið að fara upp á skíðasvæði og á Geirmundarball á laugardaginn, borða páskaegg og góðan mat, drekka rauðvín og borða osta. Þetta verða frábærir páskar!!! Pabbi ætlar meira að segja að skella sér norður frá föstudegi til sunnudags svo það verður tómlegt hér seinnipartinn á sunnudaginn þegar allir gestirnir fara. Reyndar er Guðrún komin norður en  hún er í íbúðinni hjá tengdó og kannski kemur líka önnur systir hennar sem heitir Brynja og John maður hennar. Það gæti því orðið fjölmennt í mat hér á sunnudaginn W00t. Nú er hinsvegar mál að fara að þrífa svo húsið verði boðlegt öllum þessum gestum. Gleðilega páska ef ég nenni ekki að skrifa meira fyrir páska.


Risaeðla til sölu

Já þetta er einmitt eitt af því sem ég hef alltaf þráð að eiga. Er að spá í að að skella mér á eina. Get kannski látið hausinn gapa út um stofugluggann Grin


mbl.is Risaeðla til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi verður allt í lagi með hana

Ég vona að stelpuskottið hafi ekki slasast eða a.m.k. ef svo er að það sé ekki alvarlegt. Sendi aðstandendum bestu kveðjur
mbl.is Fjögurra ára stúlka féll niður rúllustiga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pælingar um höfuðborgarsvæðið

Ég ætti eiginlega að segja Keflavíkurferð því ég var nú meirihluta tímans í Kefló en ekki Reykjavík. Mikið er ég alltaf fegin þegar ég kemst þaðan í burtu. Það er algerlega ofvaxin mínum skilningi hvernig ég gat búið í Reykjavík í mörg ár án þess að bilast á geðsmunum, deyja í umferðarslysi eða lenda á sjúkrahúsi vegna mengunar!!! Crying Það er svo miklu betra að búa úti á landi enda er það svo að flestir þeir sem gera það skilja ekki hvernig fólk getur búið á höfuðborgarsvæðinu. Nú er það svo að ég er fædd og uppalin á Stór-Reykjavíkursvæðinu en þegar ég átti Ölmu og var í fæðingarorlofi úti að ganga með hana alla daga þá fór ég í svona Útópíu fílíng og ákvað að ég vildi ekki ala upp barn í Reykjavík. Ég hef aldrei séð eftir þeirri ákvörðun að flytja út á land og þó ég myndi einhverntímann taka ákvörðun um að flytja úr Skagafirði myndi ég ekki fara aftur á  höfuðborgarsvæðið. Það er ómetanlegt að vera nálægt náttúrunni, geta skroppið á milli staða á nokkrum mínútum en eyða ekki hálfum deginum í mengandi og stressandi umferð, þekkja vini barnanna og foreldra þeirra, losna við pressuna um að komast á þessa eða hina útsöluna í von um bestu kaup ársins og hafa meiri tíma til að sinna fjölskyldunni í manneskjulegra og rólegra umhverfi.

 Annars skemmti ég mér ágætlega um helgina. Ég heimsótti m.a. fullt af fólki, fór í fermingu og skrapp í Vatnaveröld Reykjanesbæjar. Sá staður er snilld. Leiksvæði fyrir krakkana innandyra svo maður getur farið á veturnar án þess að allir komi veikir heim. Ég væri reyndar alveg til í að hafa hana í Skagafirði en maður getur víst ekki fengið allt Whistling


Sjáið hvað hún er flott í nýja kjólnum.

Ég fékk dugnaðarkast í janúar og heklaði þennan kjól handa Ölmu. Mér finnst hann voðalega flottur og varð að sýna ykkur hann. Best er að hún er mjög hrifin af honum líka og finnst þægilegt að vera í honum.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Klikkað lið

Hvað er að sumu fólki????? Ég sá í DV í dag að pólsk stelpa lenti í því að einhverjar fullar smástelpur réðust á hana og bitu í andlitið af því að hún var pólsk!!! Er ekki í lagi með þetta lið? Ætli þær vilji fá svona móttökur þegar þær skreppa í sumarfrí til Spánar eða í verslunarferð til London? Þær myndu örugglega kvarta hástöfum og selja fréttina í Séð og heyrt Wink . Ég hef virkilegar áhyggjur af því hvað umræðan um fordóma er að verða meiri. Ég er ekki endilega viss um að fordómarnir séu meiri, en þeir sem eru á móti innflytjendum virðast fá meiri athygli fjölmiðla en áður var. Það er líka möguleiki að lítill hópur fólks sé að fá aðra með sér í krafti neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um innflytjendur. Ég hef alltaf litið svo á að það sé ekkert fólk æðra eða betra en annað. Við erum öll ólík hvort öðru á mismunandi hátt, höfum mismunandi hæfileika og fáum mismikil tækifæri í lífinu til að rækta þá. Ég meina..... hvað ef Mosart hefði t.d. fæðst inn í fjölskyldu sem hefði ekki veitt honum aðgang að hljóðfæri og eflt hann í tónlistariðkun!!!!! Ég er kannski snillingur í vísindum en hef bara aldrei látið reyna á það Tounge .  .........jæja ég er farin að æfa fyrir næsta maraþon því ég er viss um að þar liggur næsta sóknarfæri. Verst að foreldrar mínir voru hálfgerð sófadýr svo ég fékk ekki mikla hvatningu til íþróttaiðkunar í æsku. Annars væri ég örugglega margfaldur Ólympíuverðlaunahafi... he he he

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband