6.5.2008 | 09:16
Helvítis fokking þokudrusla.......
Mikið hata ég þoku.... !!!! Ég man eftir að það hafi verið þoka tvisvar sinnum í Keflavík öll mín uppvaxtarár en hérna fyrir norðan kemur þetta helvíti reglulega og eyðileggur annars ágæta sólardaga....arg.... garg...óp og öskur!!!!!!!!!!! Maður horfði í gær út um gluggana á sólina og það passaði... hálftíma eftir að ég var búin að vinna var komin þoka !!!!! Ótrúlegur andskoti . Svo þegar maður vaknaði í morgun, spenntur eftir 12 - 15 stiga hitanum sem var búið að spá, sá maður bara helv. þokuna og það var 3 stiga hiti.... . Er nokkuð skrýtið þó maður þoli þetta fyrirbæri ekki?
2.5.2008 | 14:53
Samræmt próf í samfélagsfræði á mánudaginn og nokkrar skammir!
Þá er alveg að koma að því að nemendur mínir taki samræmt próf í samfélagsfræði. Ég vona bara að þeim gangi vel. Ég var með aukatíma áðan og sat með nokkrum gaurum og fór yfir helstu atriði í söguhlutanum. Maður er alltaf aðeins stressaður með krakkagreyjunum þegar samræmdu prófin nálgast en það er að minnsta kosti gott að veðrið er ekki búið að vera neitt ferlega spennandi. Ég man ennþá þegar við Sigurbjörg lágum á stéttinni undir þvottasnúrunum heima hjá henni að læra undir stærðfræðiprófið í glampandi sól og góðu veðri. Hún bjargaði því sem bjargað varð hjá mér því ég var með svo mikla unglingaveiki í 9. bekk (núna 10. bekk) að ég hafði nú ekki lært mikið þann veturinn!!!!!! Í gær fór Alma á sundnámskeið með pabba sínum og var í því að monta sig. Hún sleppti handkútunum í fyrsta sinn og var bara með mittiskút. Eftir hádegi fórum við niður í reiðhöll þar sem krakkarnir í hestamannafélögunum í Skagafirði voru að fagna lokum vetrarstarfsins. Þeir verða svo með sýningu í reiðhöllinni á laugardaginn og þá ætlum við að fara til að horfa á þau. Við fórum einnig í gær í félagsheimilið Ljósheima þar sem verkalýðsfélögin voru með ókeypis kaffiveitingar, ræðu og skemmtiatriði. Þegar leikatriðin og tónlistaratriðin byrjuðu fór Alma með vinkonu sinn og tveimur öðrum krökkum og settist fyrir framan sviðið. Þegar tvær stelpur spiluðu á fiðlu stóð mín dama upp og stakk puttum í eyrum og hélt höndunum út frá hausnum!!!!!! Ég skammaðist mín nett......... og það var ekki til að bæta það að ég þekkti báðar stelpurnar því önnur er nágranni okkar og hin er dóttir samstarfskonu minnar.... frekar pínlegt!!! Alma fékk kurteisisfyrirlesturinn þegar út í bíl var komið.. he he he Þegar við komum heim fórum við aðeins út í garð og þá tók ég eftir því að hún dóttir mín hafði fundið svartan áberandi (permanent marker) tússpenna úti og ákvað að búa til listaverka á húsvegginn bakvið hús....... Ég varð þokkalega brjáluð og þá kom annar fyrirlestur... he he he
Well er að fara á eftir í "sjæningu", ætla svo út að borða með liðið á Ólafshús í pizzu og svo á ball með Geirmundi.
30.4.2008 | 10:48
Geiri gæi á föstudaginn
28.4.2008 | 15:22
Ný vinna
Ég sótti um spennandi vinnu fyrir páska og fékk að vita um daginn að ég fengi hana. Þetta er ekki full vinna svo ég mun sinna þessu í sumar og sem aukavinnu framan af næsta vetri. Ég vil ekki segja of mikið ennþá því þegar ég fer suður í 25 ára fermingarafmælið mun ég skrifa undir ráðningarsamning vegna þessa verkefnis. Það sem ég get sagt ykkur er að mig hefur dreymt um að gera þetta lengi og þetta tengist því sem ég gerði í lokaritgerðinni minni í Kennó ef einhver fattar. Ég fæ ágætis aukapeninga fyrir þetta en að vísu er alveg ljóst að ég mun þurfa að vinna fyrir hverri krónu. Við erum samt búin að ákveða að láta ganga frá planinu í haust og helluleggja það en einnig ætlum við að laga baðherbergið. Svo verður hægt að eyða án samviskubits þegar við förum til Tenerífe í sumar. Boy oh boy mikið hlakka ég til þess .....
27.4.2008 | 10:29
Afmælisveisla Ölmu Karenar
Prinessan varð 6 ára í gær og það var haldið upp á það með pompi og prakt. Þegar mest var voru 13 krakkar og eitthvað af foreldrum svo það var eins gott að við mæðgur vorum búnar að baka helling af góðgæti. Alma var komin í senjorítukjólinn sem afi keypti á Tenerífe snemma um morguninn og setti svo bara upp svuntu þegar hún var að hjálpa mömmu í eldhúsinu. Krakkarnir skemmtu sér hið besta og það kom sér vel að hafa stórt hús í gær. Ekki verra að Alma á eiginlega tvö herbergi því leikloftið er eins og sér herbergi. Þar er allt dúkkudótið, barbídúkkurnar og hægt að elda og leggja á borð og svoleiðis. Þar voru stelpurnar því mikið í mömmó. Svo er nú ekki verra að hafa rennibraut inni og margir notuðu hana. Við höfðum einnig kveikt á dvd í okkar herbergi og þar var vinsælt að setjast smá stund og horfa. Um kvöldið fékk Alma svo að vaka lengi og sofa alla nóttina í mömmu og pabba rúmi enda var þetta nú afmælisdagurinn hennar og allt gert til að dekra hana sem mest. Hún fékk fullt af gjöfum og var mjög ánægð með þær. Við ákváðum að gefa henni pening sem hún ætlar að fara með í Toy´s r us þegar við komum suður til að fara í 25 ára fermingarafmælið í Keflavík. Þá verður farið í stóru dótabúðina (eins og hún kallar hana) og þá á að versla. Hún fékk í aukabónusgjöf að Guðrún stóra systir kom heim um helgina og það er búið að vera mikið knús hjá þeim.
23.4.2008 | 09:27
Flensuleiðindi
21.4.2008 | 15:15
Ífuferð
Jæja þá er helgin búin og það var geggjað stuð. Það skyggði reyndar á gleðina að á miðvikudagskvöldinu veiktist Alma og ég fór með hana til læknis. Það kom í ljós að hún hafði fengið flensuna sem er víst í hámarki núna. Versta var að ég fór sjálf að finna fyrir slappleika þegar leið á daginn svo ég fór og keypti sólhatt og paratabs sem ég bruddu samviskusamlega næstu daga. Ég ákvað að fara í ferðina þó ég væri aðeins slöpp í þeirri von að það yrði ekkert meira en mér varð ekki að þeirri ósk minni. Núna erum við Alma saman heima veikar og ég veikari en hún því það er auðvitað ekki það besta fyrir heilsuna að vera á svona flækingi eins og ég gerði. Á fimmtudagskvöldinu klæddum við okkur upp sem prinsessur og veitt voru búningaverðlaun. Eftir það var Sigga Kára með leðurföndur. Hún kom með risastór lambsskinn sem hún hafði límt sjávarleður á. Við fengum allar mismunandi útfærslur. Ég fékk ólitaðan hlýra og svo fórum við að hanna töskur, skera leðrið og sauma það saman með leðuról. Þetta var hrikalega gaman og flottar töskurnar sem urðu þarna til. Á föstudeginum fengum við leiðsögn um Gása sem er fornleifasvæði rétt norðan við Akureyri. Það var mjög fróðlegt og skemmtilegt. Á eftir var borðað á tælenskum veitingastað á Akureyri og svo lá leiðin á kynningu í Purity Herbs. Þar fengum við að skoða húsnæði, var sagt frá framleiðslunni og fengum að kaupa með afslætti. Allar keyptum við Unaðsolíu og fleira skemmtilegt!!! Næst fórum við í Hár og heilsu þar sem við dúlluðum okkur í heita pottinum og gufunni á milli þess sem við fengum andlitsmaska og axlanudd. Tvær fóru í lengra nudd og ein í klippingu og næringu. Þetta var ákaflega notalegur dagur og þar sem þetta var afmælisdagurinn minn fékk ég mér bjór með matnum í hádeginu og svo vorum við flestar að sulla í freyðivíni í pottinum. Um kvöldið pöntuðum við bara pizzu og fórum frekar snemma í háttinn þar sem allar voru svo slakar eftir allt dekrið. Á laugardeginum var byrjað á nammibar Hagkaupa og síðan haldið inn á Grenivík. Þar fengum við að skoða harðfiskverkunina Eyjabita og keyptum allar slatta. Síðan var haldið í einhverja þá geggjuðustu ferð sem ég hef farið. Við fórum með snjótroðara upp á topp á Kaldbaki sem er 1174 m yfir sjávarmáli. Það var stundum skuggalega bratt. Þegar við komum upp á toppinn var stoppað í u.þ.b. korter en svo fengum við að fara niður á snjóþotum ef við vildum. Sumir höfðu tekið með sér bretti eða skíði og margir voru líka með Stigasleða en við "kellingarnar" sátum á einföldum snjóþotum sem maður gat rétt svo troðið sér ofaní. Mér leist nú ekki nema svona mátulega á blikuna fyrst til að byrja með því fyrsta brekkan var frekar brött en fjallið var samt þannig að maður þurfti alltaf að ganga öðru hverju að næstu brekku. Þegar ég kom að síðustu brekkunni fékk ég nett sjokk því það var líklega um 80° halli í henni. Það endaði með því að ég tók snjóþotuna og festi bandið á henni á úlnliðinn og renndi mér á rassinum. Þá rann ég á mátulegri ferð fyrir minn smekk. Þetta var alveg geggjað. Nú næst fórum við í Safnasafnið á Svalbarðseyri og svo í bústaðinn að græja okkur fyrir kvöldið. Þá var farið út að borða á La Vita El Bella og svo í leikhús á leikritið Fló á skinni. Það var virkilega skemmtilegt leikrit og ég mæli með því við alla. Þegar við komum heim í bústaðinn var sungið fram á nótt og daginn eftir haskað sér heim.
15.4.2008 | 08:39
Forsetinn í heimsókn og Alma lærir að hjóla
13.4.2008 | 22:18
Ífuskemmtun næstu helgi
11.4.2008 | 15:46