11.4.2008 | 15:46
Launapirringur
Ég er ennþá pirruð síðan í gær þegar ég las það í Fréttablaðinu að kennarar eru með lægstu launin innan BHMR. Ég hafði svo sem heyrt það en eins og litlu börnin sem reyna að gleyma óþægilegum staðreyndum þá hafði ég reynt að hugsa um eitthvað annað. Svona fréttir valda því að kennarastofan logar af umræðum og allir verða voða æstir og eiga svakalega bágt og mann langar mest til að pakka niður draslinu sínu og fara bara að svara á síma hjá einhverju einkafyrirtæki og fá meira borgað fyrir það!!!!
Það er nú hægt að pirrast þegar krakkakvikindi nýkomin úr grunnskóla eru jafnvel að fá hærri laun en maður sjálfur!!! Hvað er símanúmerið í Bónus....???? Best að hringja og fá vinnu á kassa... það eru sennilega hærri laun... ja well, kannski ekki þar en samt................. urrrrrrrr
... Helgin bætir örugglega skapið og ég vona að þið eigið góðar stundir elskurnar. Bið að heilsa ykkur öllum.


Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Mér er andskotans sama svo framarlega sem það er ekki ég!!!! Þar að auki er munurinn svo mikill að þó það yrði ekki gert annað en að JAFNA launamuninn svo enginn yrði lægstur þá yrði ég strax glaðari
Kristín Guðbjörg Snæland, 11.4.2008 kl. 23:09
Ég væri sko alveg til í að jafna launamuninn þá væri ég rosa rosa rosa glöð.
Sigurbjörg (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 12:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.