Nýjar myndir og Áfram Ísland!!!

Ég setti inn nokkrar myndir frá 25 ára fermingarafmælinu. Sumar voru ekki nógu skýrar..... Halo  en ég bæti kannski fleirum við seinna. Ég hélt smá partý í kvöld með Dóru vinkonu. Bauð henni í kjúlla, fransar og salat. Fengum okkur ís í eftirrétt og horfðum á Eurovision með krökkunum. Þegar við komumst áfram fengu krakkarnir kast og görguðu Áfram Ísland í hálftíma eða svo.... he he he. Mikil stemming en ég hefði viljað sjá Hvíta Rússland og Austurríki komast áfram. Hvað var annars málið með Portúgal.....??? Þvílík hörmung... he heLoL  Á laugardaginn verður líklega svaka partý þar sem Waleska, Ægir og Nanna frænka hennar verða hjá okkur og við verðum þá 7 að fylgjast með. Ætlunin er að grilla eitthvað gott me me í kvöldmatinn og það verður líklega heimtað að "pabbi" geri það. Það er í lagi mín vegna, fæ mér bara bjór á pallinum og horfi á rassinn á honum..... úllalla.....

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dóra Maggý

Hæ dúlla !!!! já það segirðu satt,rosa partý með blessuðum börnunum og þá næst verður það fjörið á laugardaginn jibbbííí.... loksins getur maður fylgst með af áhuga hehehe..... Ísland með !!!!  geggjað..... takk fyrir okkur,þetta var mjög gott allt saman :)   ertu bún að taka til eftir lítinn handóðan  kall ???   hahaha.....   en við sjáumst ogheyrums eins og venjulega og ÁFRAM ÍSLAND !!!!   knússsss...

Dóra Maggý, 23.5.2008 kl. 00:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband