19.10.2009 | 08:47
Maður blikkar og það verða komin jól!
Mér finnst tíminn líða svo hratt. Skólinn hófst á ný fyrir korteri eða svo og það er strax komið fram í miðjan október. Ef maður mætlar að föndra eða prjóna jólagjafir er ekki seinna vænna en að koma sér að verki því tíminn flýgur. Við vorum fyrir sunnan í haustfríinu og eins og venjulega hittum við fullt af fólki, kíktum í búðir og skelltum okkur í sund. Núna er bara að taka til og ganga frá öllu dótinu hennar Úrsúlu, þrífa húsið og undirbúa saumaklúbb á þriðjudagskvöldið.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.