12.8.2008 | 18:54
Ha ha við unnum Þjóðverja!!!!
Jæja Marianna..... við unnum ykkur... ligga ligga lái....
. Í dag fórum við í berjamó og týndum helling af bláberjum í dollu. Ég keypti svo vanilluskyr og rjóma og það verður kvöldmaturinn í dag. Nammi namm .... mikið hlakka ég til. Ég er að spá í að drífa mig út í kvöld og bera viðarvörn á pallinn því það er svo gott veður en ég veit ekki alveg hvort ég nenni því. Það kemur í ljós. Á morgun ætlum við mæðgur að skella okkur á Akureyri um hádegi og vera eitthvað fram eftir degi. Það verður örugglega gaman. Bið að heilsa í bili.

Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.