Detta mér allar dauðar lýs úr höfði

Ég spurði Sigga hvort það væri aftur kominn 1. apríl þegar hann hringdi og sagði mér frá þessari frétt. Ég fór á netið og viti menn.... það er ísbjörn á Þverárfjalli..... ja líklega.... Þegar ég hafði skoðað þetta hljóp ég í hræðslukasti fram á gang að leita að einhverjum stórum og sterkum karli til að verja mig þar sem Siggi var fyrir sunnan en nei.... karlarnir í vinnunni höfðu sjálfir hlaupið af stað og brunað upp á Þveraárfjall í þeirri von að líta bangsa augum. Nú sitjum við hér veikara kynið og lofum  hver annarri því að ef hvít loppa bankar á gluggann þá munum við ekki opna hann!!!!! he he he múhahhaahh Grin
mbl.is Ísbjörn við Þverárfjall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét M

það hefði nú ekki þurft að drepa kvikindið ..

Margrét M, 3.6.2008 kl. 15:30

2 identicon

Fyrsti apríl var það fyrsta sem manni datt í hug, vissi nú ekki að þeir gætu synt svona langt, datt hels í hug að hann hefði komið með árabát  Er það ekki alveg jafn líklegt,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Sigurbjörg (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband